Quantcast
Channel: myrinfestival – Mýrin Bókmenntahátíð
Viewing all 97 articles
Browse latest View live

Spennandi lokamálþing í ár! / An exciting final seminar this year!

$
0
0
Það kunna að myndast spennandi skoðanaskipti á lokamálþingi Úti í mýri að þessu sinni. Barnabókaútgáfa stendur í blóma en undanfarin ár hefur færst í vöxt að ráðnir séu teiknarar frá fjarlægum löndum til að myndlýsa bækur fyrir íslensk börn. Íslenskir teiknarar hafa eðlilega haft áhyggjur af þessari þróun. Síðasta málþing hátíðarinnar er helgað þessari þörfu umræðu og … Halda áfram að lesa: Spennandi lokamálþing í ár! / An exciting final seminar this year!

Mari Ahokoivu! Gestur / Guest 2016

$
0
0
Mýrinni veitist sú ánægja að tilkynna að finnski teiknarinn Mari Ahokoivu (f. 1984) verður gestur hátíðarinnar í ár. Mari er vel þekkt í heimalandi sínu, hefur meðal annars gert myndasögur bæði fyrir börn og fullorðna og kennir myndasögugerð. Bækur hennar hafa verið gefnar út í nokkrum löndum. Hún kemur til Íslands til að taka þátt … Halda áfram að lesa: Mari Ahokoivu! Gestur / Guest 2016

Allt fullt hjá Ævari, pláss í myndasögugerð

$
0
0
Skráning í vinnustofur og á málþing hátíðarinnar í ár hefur gengið afar vel og er nú svo komið að fullt er á suma viðburði. Því miður er til dæmis orðið fullt hjá Ævari vísindamanni á sunnudeginum – það þyrfti nú bara að klóna þann mann! En ennþá eru laus pláss í þrjár, frábærar og spennandi … Halda áfram að lesa: Allt fullt hjá Ævari, pláss í myndasögugerð

Myndir frá Mýrarhátíð 2016 / Photos – In the Moorland 2016

$
0
0
Alþjóðlega barnabókmenntahátíðin Úti í mýri var haldin í Norræna húsinu dagana 6. – 9. október 2016 við góðar undirtektir gesta. Fjöldi barna og fullorðinna sóttu skemmtilega og fróðlega upplestra og fyrirlestra, vinnustofur, málstofur, sýningaleiðsagnir og heiðursdagskrá. Norræna húsið og stjórn Mýrarinnar þakkar öllum þátttakendum og gestum hátíðarinnar fyrir dýrmætt framlag og eftirminnilega daga úti í Vatnsmýri. The International … Halda áfram að lesa: Myndir frá Mýrarhátíð 2016 / Photos – In the Moorland 2016

Jólakveðja frá Mýrinni / Holiday Greetings!

$
0
0
Stjórn Mýrarinnar sendir öllum þátttakendum og gestum á barnabókmenntahátíðinni ÚTI Í MÝRI 2016 bestu jólakveðjur og þakkar stuðningsaðilum og samstarfsfólki gjöfult samstarf með óskum um farsæld og gæfu á nýju ári. Sjáumst á Mýrarhátíð 2018! Mýrin Festival wishes all guests, participants, co-workers and supporters of the children’s literature festival IN THE MOORLAND 2016 a very … Halda áfram að lesa: Jólakveðja frá Mýrinni / Holiday Greetings!

Mýrin 2018 / The Moorland Festival 2018

$
0
0
Það gleður okkur í stjórn Mýrarinnar að tilkynna að hafinn er undirbúningur að næstu hátíð sem fara mun fram haustið 2018! Takið endilega frá dagana 11. – 14. október 2018 því þá mun Norræna húsið fyllast af barnabókahöfundum héðan og þaðan, kátum krökkum alls staðar að og öllum áhugasömum um börn og barnabókmenntir. Við lofum spennandi upplestrum, krassandi vinnustofum og áhugaverðum málstofum. We are happy to announce that we started preparing for the next Moorland Festival that … Continue reading Mýrin 2018 / The Moorland Festival 2018

Benjamin Chaud – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Mýrin tilkynnir með stolti að Benjamin Chaud verður gestur hátíðarinnar í haust. Benjamin Chaud fæddist árið 1975 í Suður-Frakklandi. Hann nam við listaskólana Les arts appliqués í París og Les Art Décoratifs í Strasbourg. Fljótlega eftir útskrift sem mynd-skreytir var Chaud tvívegis boðið að taka þátt á Barnabókamessunni í Bologna. Árið 2011 kom bókin Une … Continue reading Benjamin Chaud – Gestur 2018 / Guest 2018

Anna Höglund – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Það er Mýrinni ánægja að tilkynna að Anna Höglund (1958) verður gestur hátíðarinnar í haust. Anna Höglund er sænskur rit- og myndhöfundur. Hún er af mörgum talin einn fremsti myndhöfundur Svía um þessar mundir og hefur hún unnið með rithöfundum á borð við Ulf Stark og Barbro Lindgren. Fyrir verk sín hafa henni hlotnast margar viðurkenningar … Continue reading Anna Höglund – Gestur 2018 / Guest 2018

Aleksandra Mizielińska & Daniel Mizieliński – Gestir 2018 / Guests 2018

$
0
0
Mýrin kunngjörir með gleði að Aleksandra Mizielińska og Daniel Mizielinski frá Póllandi verða gestir hátíðarinnar í október. Aleksandra og Daniel lærðu grafíska hönnun í Listaháskólanum í Varsjá og eru stofnendur Hipopotam Studio en þar framleiða þau, hanna, skrifa og myndskreyta bækur fyrir börn og fullorðna.  Bækur þeirra hafa verið útgefnar í fleiri en þrjátíu löndum og hefur … Continue reading Aleksandra Mizielińska & Daniel Mizieliński – Gestir 2018 / Guests 2018

Marit Törnqvist – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Það gleður Mýrina að tilkynna að Marit Törnqvist er einn af höfundunum sem taka þátt í Mýrinni í október. Marit Törnqvist fæddist í Uppsölum í Svíþjóð árið 1964. Þegar hún var 5 ára gömul flutti hún til Hollands ásamt hollenskri móður sinni, sænskum föður og systkinum sínum. Á árunum 1982-1987 lærði hún myndskreytingar í Gerrit … Continue reading Marit Törnqvist – Gestur 2018 / Guest 2018

Jenny Lucander – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Það gleður Mýrina að segja frá því að Jenny Lucander verður einn af góðum gestum hátíðarinnar. Jenny er frá Finnlandi og lærði barnabóka- myndskreytingar og hönnun við háskólann í Gautaborg árin 2010-2013. Hún er einnig með meistaragráðu í félagsvísindum og BA-gráðu í félagssálfræði. Bækurnar Vildare, värre, Smilodon 2016 (texti Minna Lindeberg, myndir Jenny Lucander) og … Continue reading Jenny Lucander – Gestur 2018 / Guest 2018

Peter Madsen – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Það gleður Mýrina að tilkynna að Peter Madsen er gestur á hátíðinni í haust. Hann er myndlistarmaður og teiknari, rithöfundur, kvikmynda-gerðarmaður og fyrirlesari. Hann fæddist árið 1958 í Árósum í Danmörku. Aðeins 15 ára gamall gaf hann út fyrstu teiknimyndaseríur sínar. Árið 1984 snéri hann sér alfarið að listinni en það ár leikstýrði hann teiknimyndinni … Continue reading Peter Madsen – Gestur 2018 / Guest 2018

Gunilla Bergström – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Mýrin tilkynnir með stolti að Gunilla Bergström verður gestur hátíðarinnar í haust. Gunilla fæddist í Gautaborg árið 1942. Hún lauk blaðamannaprófi árið 1966 og starfaði sem blaðamaður. Frá árinu 1975 hefur hún eingöngu starfað sem rithöfundur og teiknari. Gunilla gaf út fyrstu bók sína árið 1971 en strax árið eftir kom fyrsta bókin um þekktustu persónu hennar, hinn hugmyndaríka og … Continue reading Gunilla Bergström – Gestur 2018 / Guest 2018

Malene Sølvsten – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Það gleður Mýrina að tilkynna að Malene Sølvsten verður gestur hátíðarinnar í ár.  Hún er  danskur höfundur fantasíubóka, fædd árið 1977. Frumraun hennar, Ravnenes Hvisken  kom út árið 2016 í Danmörku. Önnur bókin í þríleiknum kom út ári síðar og er von á síðustu bókinni seinna á þessu ári.  Á íslensku hefur fyrsta bókin Hvísl Hrafnanna komið … Continue reading Malene Sølvsten – Gestur 2018 / Guest 2018

Finn-Ole Heinrich – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Það gleður Mýrina að tilkynna að Finn-Ole Heinrich (1982) er gestur hátíðarinnar í haust. Árið 2011 kom fyrsta barnabók hans, Frerk du Zwerg! út. (ísl. “Frerk, dvergurinn þinn!”) Í sögunni segir af drengnum Frerk. Hann flýr inn í draumaheim en dag einn finnur hann óvenjulegt egg sem mun breyta lífi hans og snúa tilverunni á hvolf. … Continue reading Finn-Ole Heinrich – Gestur 2018 / Guest 2018

Rasmus Bregnhøi – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Mýrin tilkynnir með ánægju að Rasmus Bregnhøi verður gestur á hátíðinni í haust. Hann er danskur mynd- og rithöfundur sem hefur á 25 ára ferli sínum myndskreytt yfir eitt hundrað bækur fyrir börn, teiknimyndasögur og myndasögur fyrir fullorðna ásamt því að myndskreyta fyrir dagblöð og tímarit. Hann er lærður teiknari frá Danmarks Designskole og tók … Continue reading Rasmus Bregnhøi – Gestur 2018 / Guest 2018

Forföll höfundar / Author’s cancellation

$
0
0
Mýrinni þykir leitt að tilkynna að Gunilla Bergström getur því miður ekki komið til Íslands í haust. Hún hefði gjarnan viljað koma á hátíðina í október en af heilsufarsástæðum á hún ekki heimangengt. Við óskum Gunillu alls hins besta! Fljótlega kynnum við annan Norrænan höfund til leiks sem verður gestur okkar í haust. Sá höfundur … Continue reading Forföll höfundar / Author’s cancellation

Siri Pettersen – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Mýrin tilkynnir með stolti að Siri Pettersen verður gestur hátíðarinnar í haust. Siri er norskur rithöfundur og teiknimyndasöguhöfundur sem einnig starfar við hönnun ýmis konar og textagerð. Fyrsta skáldsaga hennar í fullri lengd, ungmennabókin Barn Óðins eins og hún gæti útlaggst á íslensku, kom út árið 2013, fyrsta bókin í þríleiknum Hrafnsvængirnir (á norsku Ravneringene). Í þríleiknum … Continue reading Siri Pettersen – Gestur 2018 / Guest 2018

Kjersti Lersbryggen Mørk – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Mýrin tilkynnir með ánægju að Kjersti Lersbryggen Mørk verður gestur okkar í haust. Hún er fræðimaður við Norsku barnabókastofnunina (Norsk barnebokinstitutt) og Háskólann í Osló. Um þessar mundir vinnur hún að doktorsritgerð sinni:  Vitnisburður um illsku – barnabókmenntir á okkar tímum? Hún hefur kennt bókmenntir við Norsku Barnabókastofnunina og á flestum skólastigum í heimalandi sínu. … Continue reading Kjersti Lersbryggen Mørk – Gestur 2018 / Guest 2018

Janina Orlov – Gestur 2018 / Guest 2018

$
0
0
Mýrin kynnir með stolti síðasta erlenda gest hátíðarinnar í haust.  Janina Orlov er verðlaunaður bókmenntaþýðandi, fædd árið 1955 í Helsinki. Hún þýðir aðallega texta úr rússnesku og finnsku yfir á sænsku og er ötul við að kynna finnskar bókmenntir. Með þýðingum sínum hefur Janina, ásamt öðrum, stuðlað að uppgangi finnskra bókmennta á alþjóðavísu og hefur hún … Continue reading Janina Orlov – Gestur 2018 / Guest 2018
Viewing all 97 articles
Browse latest View live