Mýrin kunngjörir með gleði að finnski rithöfundurinn Salla Simukka (f. 1981) verður gestur hátíðarinnar í október 2016. Salla er höfundur Mjallhvítarþríleiksins sem hefur notið velgengni á heimsvísu. Salla hefur starfað sem þýðandi, bókmenntagagnrýnandi, handritshöfundur og ritstjóri bókmenntarits fyrir ungt fólk, LUKUfiilis. Salla hefur gefið út nokkrar skáldsögur, smásagnasafn fyrir unga lesendur og þýtt fagurbókmenntir, barnabækur og […]
